Undirhúsið
Njóttu þess að fá þér kaffibolla, svalandi drykk eða vínglas á kaffihúsinu okkar sem ber nafnið Undirhúsið. Kaffihúsið má finna á 5.dekki
Á daginn er hægt að sitja á kaffihúsinu og njóta útsýnis yfir Atlantshafið í þægilegu andrúmslofti. Hægt er að spila bingó eða hlusta á lifandi tónlist með nokkrum af bestu tónlistarmönnum Færeyja.
Undirhúsið tekur allt að 225 gesti í sæti en einnig er hægt að nota staðinn fyrir ráðstefnur og fundi.