Það er hagstæðara að panta matinn fyrirfram
Norræna býður upp á veitingastaðina The Diner og Norræna Buffet auk veitingarstaðarins Simmer Dim. Norræna Buffet býður upp á morgunverðar- og kvöldverðarhlaðborð með miklu úrvali. Veitingarstaðurinn Simmer Dim býður upp á forrétti, aðalrétti og eftirrétti. The Diner er opin allan daginn og einnig þær nætur sem komið er í höfn. Þar getur þú keypt morgun-, hádegis- og kvöldmat, kaffi, te, bakkelsi og drykkjarvörur.
Hægt er að breyta fyrirfram pöntuðum máltíðum þegar komið er um borð. Þá er greiddur sá mismunur á pöntuninni og því verði sem er um borð.
Hægt er að bóka máltíðir fyrirfram á opnunartíma skrifstofu. Ekki er hægt að bóka máltíðir fyrirfram þegar brottför er hafin. Fyrir bókanir þá biðjum við um að sendur sé tölvupóstur með bókunarnúmerinu á booking@smyrilline.is eða hafa samband við okkur í síma +354 470 2803. Vinsamlegst athugið að staðgreiða þarf fyrirfram pantaðar máltíðir ef bókunin er gerð innan 32 daga fyrir brottför.