Innflutningur á ökutækjum og kílómetragjald á Íslandi

Tímabundinn innflutningur ökutækja

Farþegar til Íslands á ökutækjum með erlend skráningarnúmer þurfa að fylla út rafræna yfirlýsingu fyrir komu. Þessi aðferð aðstoðar við þægilega innkomu og er í samræmi við staðbundnar reglur.

Íslensk tollayfirvöld, Skatturinn, mun senda tölvupóst allt að 30 dögum fyrir brottför með nákvæmum upplýsingum og tengli að rafrænu yfirlýsingunni fyrir bókun þína.

Vinsamlegast skoðaðu tölvupóstinn þinn fyrir þessum mikilvægu upplýsingum. 

Fyrir frekari upplýisngar, vinsamlegast skoðið heimasíðu Skattsins

Kílómetragjald á Íslandi

Frá 1. janúar 2026 eiga allir sem taka bíl með til Íslands að greiða kílómetragjald.

Kílómetragjaldið byggir á eknum kílómetrum á Íslandi og gildir fyrir öll ökutæki óháð okugjafa.

Ef þú ætlar að vera á Íslandi í allt að 30 daga er greitt fast gjald, en ef þú ætlar að vera lengur þá verður greitt að lágmarki fyrir 30 daga. Ef eknir kílómetrar reiknast fleiri en áætlað, verður mismunur greiddur við brottför. Kílómetragjaldið er sett á og innheimt af Skattinum.

Lesið meira um kílómetragjaldið á heimasíðu skattsins hér.

Varanlegur innflutningur á ökutækjum

Athugið að varanlegur innflutningur á ökutækjum er ekki mögulegur án farmskráningar og tollskýrslugerðar.

Ef bifreið farþega er hugsuð til skráningar á Íslandi og varanlegs innflutnings er kostnaður vegna skjalavinnslu, farmskráningar og tollskýrslugerðar 64.800 ISK.

Ef ferli hefur verið sett af stað og viðskiptavinur óskar eftir því að hætta við, þá er afbókunargjald að upphæð 16.200 ISK.

Vinsamlega hafið samband við manifest@cargo.fo fyrir frekari upplýsingar.

Bókaðu ferðina hér

icon-close