Velkomin um borð
Veldu klefa sem hentar þér, pantaðu máltíðir fyrir brottför og forðastu biðraðir. Settu ferðina saman þannig að hún henti þér sem best.
Veldu þinn klefa
Við bjóðum upp á allt frá venjulegum herbergjum til lúxusherbergja. Öll herbergin eru með flatskjá, fataskáp, skrifborði, sér baðherbergi.
Matur & drykkur
Um borð er mikið úrval af ljúffengum mat – njóttu góðs hlaðborðs, ljúffengrar máltíðar á Munkastovu eða nýbakaðrar pizzu á Nóatúni.
Tollfrjáls verslun
Í versluninni Sjóbúðin um borð finnur þú spennandi tollfrjálst úrval, allt frá alþjóðlegum vörumerkjum til einstakra staðbundinna vara.
Dekraðu við þig með nýjustu norrænu tískunni, húðvörum, ilmvötnum, gjafavörum, leikföngum og sælgæti – til að njóta um borð eða taka með þér heim.

Farðu í sýndarferð í Sjóbúðinni
Fríhöfn, aðstaða og afþreying
Það er alltaf eitthvað að gera um borð fyrir ferðalanga á öllum aldri.

Móttakan
Móttakan getur aðstoðað þig við: Almennar upplýsingar, uppfærsla á klefum, tax free endurgreiðslur, nestisbox o.s.frv. Einnig er hægt að kaupa Wi-Fi aðgang, bíómiða og aðgang að heitum sjópottum í móttökunni.

Nettenging
Hægt er að kaup aðgang að internetinu á aðgangstölvu um borð eða með sérstökum aðgangskóðum í móttökunni. Vinsamlegast athugið að Wi-Fi á hafi úti hefur sínar takmarkanir. Það getur því verið að tengingin sé önnur en þú ert vanur á landi.
Sjá verð
4 timar DKK 40 / € 5.40 – 1GB
19 timar DKK 95 / € 12.83 – 3GB
36 timar DKK 144 / € 19.45 – 6GB
55 timar DKK 220 / € 29.72 – 6GB
7 dagar DKK 495 / € 66.87 – 21GB
Fyrir börn og ungmenni
Börn, unglingar og fjölskyldur geta notið góðra stunda saman um borð.
