
Svítur
Einstakar svítur
Njóttu glæsilegrar og rúmgóðrar dvalar í einstöku svítunum okkar um borð. Hvort sem þú ert á ferðalagi með maka eða fjölskyldur, þá bjóða svíturnar upp á þægindi, stíl og fyrsta flokkst aðstöðu fyrir afslappandi siglingu.

Nordic svíta
Hver svíta inniheldur svefnherbergi með tvíbreiðu rúmi (180×200 cm), baðherbergi með sturtu og baðkari, stofu með sófa, hægindastól, sjónvarp, borðstofu, skrifborð og veitingar. Bókanleg fyrir 2 farþega.

Norröna svítan
Norröna svítan er fyrir allt að 5 farþega með tvöföldu rúmi (180×200 cm) og aukarúmi (80×190 cm) í svefnherberginu, barnaherbergi með koju (80×200 cm), stofu með sófa, hægindastól, borðstofuborði og sjónvarpi í báðum herbergjum. Hún inniheldur einnig rúmgott baðherbergi með baðkari og sturtu, auk veitinga. Bókanleg fyrir 5 farþega.