Besta verð til
Danmerkur

Verð frá

209.580 ISK

Sumarið er fullkominn tími til að heimsækja Danmörku. Með lengri dögum og líflegri stemningu er þetta kjörin árstíð til að hægja á sér, skoða sig um á eigin forsendum og njóta alls frá strandbæjum til borgarferða.

Sigldu með ferju á eigin bíl og upplifðu Danmörku á þínum forsendum á besta verði tímabilsins.

Tryggðu þér besta verð tímabilsins og bókaðu sumarferðina til Danmerkur í dag.

Ferðastu í maí & júni
Frá 209.580 ISK
á mann
Innifalið
  • Verð á mann þegar 2 ferðast saman
  • Sigling til Danmerkur og tilbaka
  • Klefi án glugga
  • Bíll <1,9m H & 5m L
Brottfarir
  • Brottfarir frá Íslandi til Danmerkur:
    Maí: 7., 14. og 21.
  • Brottför frá Danmerkur til Íslands:
    Maí: 17. og 24.
    Júní: 2., 9. & 16.

Staðir til að skoða

Við mælum með eftirfarandi stöðum til að skoða.

Hirsthals

Hirsthals er fallegur hafnarbær nyrst á Jótlandi, þar sem Norröna kemur að bryggju. Bærinn býr yfir allskonar afþreyingu en þar má m.a. nefna North Sea Oceanarium sem er stærsta sjávardýrasafn í Norður Evrópu. Á safninu má finna beinagrind af langreyði. Í miðbænum eru notaleg kaffihús og veitingastaðir við höfnina. Ströndin í Hirsthals er einstaklega falleg og er þar viti, sem opnaði árið 1863, og stendur á bjarginu Stjen. Í vitanum má finna safn um sögu vitans auk kaffihúss. Á ströndinni er að finna minjar af 54 byrgjum frá Seinni Heimstyrjöldinni, auk annarra minja frá þeim tíma.

Skagen

Skagen er nyrsti bær Danmerkur, staðsettur á Jótlandi, og má finna þar eina af aðalhöfnum landsins. Bærinn býr yfir ríku fuglalífi, sögu og ströndum. Einn af þeim stöðum er smábátahöfnin með veitingstaði, kaffihús og verslanir. Í kringum bæinn má finna stærstu sandöldu í Danmörku, Rabjerg Mile. Þar er Sct. Laurenti kirkjan, sem er niðurgrafin í sandinn að hluta til og má rekja tilvist hennar til 14. aldar. Eitt af stærstu aðdráttaröflum Skagen er Grenen, náttúrufyrirbæri, þar sem hægt er að standa á skerinu og snerta bæði höfin Skagerak og Kattagat, þar sem öldur þeirra mætast. Mikið dýralíf er á svæðinu og má finna bæði fugla og stundum seli í góða veðrinu.

Óðinsvé

Óðinsvé er þriðja stærsta borg í Danmörku á eftir Árósum og Kaupmannahöfn. Borgin er staðsett á Fjóni. Finna má allskonar afþreyingu, kaffihús, verslanir og söfn. Eitt af þeim söfnum er æskuheimili frægasta skálds Danmerkur, Hans Christian Andersen. Hefur æskuheimili hans verið gert að safni, þar sem gestir fá að kynnast nýjum hliðum skáldsins. Er hann m.a. þekktastur fyrir sögur á borð við Litla hafmeyjuna, Þumalínu og Litla ljóta andarungann. Borgin hefur einnig verið nefnd grænasta borg Danmerkur. Einn af fallegustu stöðum borgarinn er Dómkirkjan, St. Knuds Kirke.

Árósir

Árósir er næst stærsta borg Danmerkur á eftir Kaupmannahöfn. Staðsett á Jótlandi í um 2 tíma fjarlægð frá Hirsthals. Borgin býr yfir mörgum skemmtilegum afþreyingum og má þarf nefna AROS listasafnið, stærsta listasafn í Norður-Evrópu og eitt mest heimsótta safn á Norðurlöndunum. Annað safn, sem vert er að skoða er Den Gamle By – Safnið um gamla bæinn, þar sem gestir ferðast aftur í tímann til gamla markaða alveg aftur til ársins 1864. Dómkirkjan í Árósum, Vores Frue Kirke, er lengsta kirkja Danmerkur og telur 93m að lengd. Fyrir framan hana er fallegt torg, sem finna má allskonar markaði yfir árið.

Kaupmannahöfn

Kaupmannahöfn er höfuðborg Danmerkur, staðsett á Sjálandi. Borgin hefur um 660 þúsund íbúa, en rúma 1,4 milljónir íbúa ef öll úthverfi borgarinnar eru talin með. Borgin býður upp á margskonar afþreyingu, en frægust af þeim er Tivoli. Frá Tivoli er hægt að ganga beint á Ráðhústorgið og yfir á göngugötuna Strikið. Á Strikinu má finna búðir, kaffihús og veitingastaði. Við enda Striksins er hið fræga Kongens Nytorv, þar sem Hotel D‘anglaterre er staðsett. Frá Kongens Nytorv er svo gengið niður á Nyhavn og þaðan í átt að Amelie Borg, konugshöllinni í Kaupmannahöfn. Frá höllinni liggur leiðin síðan niður að Löngulínu, þar sem Litla Hafmeyjan er staðsett. Finna má margar matarhallir í borginni auk dýragarðs, Kobenhavn Zoo.

Bókaðu ferðina hér

icon-close