Almennir skilmálar
BÓKUN/STAÐFESTING Á SAMKOMULAGI
Lagalegar skyldur beggja aðila, viðskiptavinar og Smyril Line (SML) byrja þegar bókunarstaðfesting hefur verið gefin út. Þessir skilmálar gilda nema annað hafi verið tekið fram þegar samningur var gerður. Það sem útgefið hefur verið í SML gögnum, bæklingum og öðru markaðsettu efni sem tengist umræddum pakkaferðum, er talið partur af samkomulagi um pakkaferðir, nema eitthvað annað samkomulag hefur verið gert. Til að samkomulagi sé haldið þá þurfa allar séróskir viðskiptavinar að koma fram í samkomulaginu.
BÓKUN
Viðskiptavinir bera ábyrgð á því að reikningur og önnur ferðagögn sé í samræmi við bókunina. Viðskiptavinir bera ábyrgð á því að SML sé með rétt nafn farþega sem samsvarar við vegabréf þess einstaklings þegar bókun er gerð. Þeim ber einnig ábyrgð að upplýsa um símanúmer og tölvupóstfang, sem er virkt á meðan ferð stendur, til að hægt sé að ná í þá. Þegar bókun er gerð, þarf að upplýsa SML um farþega sem eru með hreyfihömlun eða þroskaskerðingu, sem þurfa á aukinni aðstoð að halda varðandi öryggisupplýsingar. Vinsamlegast skoðið reglur varðandi “Innritun”, þegar ferðast er með sérþarfir.
Ert þú að ferðast á rafmangsbíl?
Vegna öryggis um borð, þá er mikilvægt að þú látir Smyril Line vita, ef þú ert að ferðast á rafmangsbíl, þegar þú bókar ferðina þína.
BÓKUNARGJALD
Bókunargjald að upphæð 3.150 ISK gildir fyrir allar bókanir sem gerðar eru í gegnum skrifstofu okkar, þar með talið í gegnum síma, tölvupóst, spjall á heimasíðu eða í persónu. Ekkert bókunargjald er fyrir bókanir sem gerðar eru í gegnum bókunarsíðu okkar á netinu.
FERÐAGÖGN
Allir gestir þurfa að hafa gild ferðagögn við höndina ef þeirra er óskað við innritun. Farþegar eru sjálfir ábyrgir fyrir öllum útgjöldum, ef til þess kemur að farþega sé hafnað aðgangi um borð vegna týndra ferðagagna. Öllum farþegum er bent á að hafa gild vegabréf, þar sem vegabréf eru einu skilríkin sem gild eru fyrir alþjóðaferðum. Þegar ferðast er til eða frá Schengen svæðinu, þá er krafist gilds vegabréfs. Ef að farþegi er ekki með ESB vegabréf, þá þarf að taka það fram við bókun.
REGLUR VARÐANDI BÖRN
Allir farþegar undir 16 ára aldri þurfa að ferðast með fullorðnum eða forráðamanni. Farþegar á aldrinum 16 til 18 ára þurfa að sýna fram á skriflegt samþykki frá foreldri eða forráðamanni áður en siglt er með Norrönu.
VERÐ
Öll verð, með gjöldum og sköttum eru sett fram í íslenskum krónum (ISK).
Fyrir allar bókanir sem varða bíla og mótorhjól, er hámarkshæð 1.90 metrar að meðaltöldum þeim farangri sem er ofan á bílnum, og er hámarkslengd 5.0 metrar, nema annað sé nefnt. Aukagjald er fyrir öll þau farartæki sem eru hærri eða lengri en þessi viðmið, auk tengivagna, hjólhýsa osfrv.
ETS gjald / EU ETS CO2 skattur
Í samræmi við skuldbindingu okkar til sjálfbærni í umhverfismálum og í samræmi við EU ETS reglur, hefur ETS gjaldi verið bætt við fargjald fyrir hvern farþega. Gjaldið er á öllum ferðum og kemur fram á farmiðanum. Öll skráð verð innihalda gjaldið.
Íslenskur vegaskattur
Frá 1 júlí 2024, þurfa farþegar sem koma á rafmagns- eða plug in hybrid bílum á erlendum skráningarnúmerum til Íslands að borga gjald. Gjaldinu verður bætt við farmiðann. Lestu meira á skatturinn.is.
Pakkaferðir sem innihalda gistingu, skoðurnarferðir osfrv.
Verð á pakkaferðum, sem fela í sér hótelgistingu á landi, og eru gefin upp í verðum á mann, eru gild fyrir 2 fullorðna sem ferðast saman, nema annað sé tekið fram.
Gisting á hótelum eða gistiheimilum eru í tveggja manna herbergjum. Fyrir einstaklinga sem ferðast einir, þá er aukagjald fyrir einstaklingsherbergi. Öll verð á bakpokagistingu eru gild fyrir herbergjum með mörgum rúmum. Vinsamlegast athugið að það geta gilt mismunandi skilmálar fyrir svefnpokagistingu á áfangastöðum. Viðskiptavinur getur annaðhvort komið með rúmföt eða leigt þau.
Gisting í sumarhúsum í Færeyjum inniheldur hita og rafmagn, en ekki rúmföt og þrif við brottför. Hægt er að panta rúmföt fyrirfram. Þrif við brottför er skylda og leggst gjald ofan á verðið.
Á komudegi, er vanalegur innritunartími frá 14:00–16:00 og seinna. Útritunartími er venjulega ekki seinna en 11:00 á brottfarardegi.
Gisting á áfangastað kemur fram í upplýsingum og á bókunarstaðfestingu. SML veitir sér þann rétt að breyta gistingu og senda gesti á samskonar gististað eða gististað af hærri gæðum. SML veitir sér einnig þann rétt að beina farþegum á aðrar ferjur/skip af sömu eða hærri gæðum. Ferðaupplýsingar eru vanalega gefnar upp á dönsku og ensku.
Skoðunarferðir, máltíðir, drykkir, gisting í landi og önnur þjónusta eins og samgöngur eru ekki innifalin í verðinu nema annað sé tekið fram.
Verð fyrir börn (3 til 11 ára) fyrir samgöngur og (3 til 11 ára) fyrir pakkaferðir sem innihalda gistingu eru byggð á að börnin gisti í sinni eigin koju eða í aukarúmi í klefa með foreldrum. Börn (0-2 ára) ferðast án gjalds, með þeim forsendum að þau gisti ekki í eigin koju eða rúmi. Aukakoja/rúm er hægt að leigja á sama verði og fyrir börn (3 til 11 ára) fyrir samgöngur eða pakkaferðir sem innihalda gistingu. Einungis er hægt að leigja eitt aukarúm á hvert tveggja manna herbergi. Einungis er hægt að panta tvö aukarúm á sérstökum hótelum og einungis eftir beiðni. Aukarúm getur verið sófi eða aukadýna osfrv.
Greiðsla
Greiðsluskilmálar
- Fyrir bókanir sem gerðar eru meira en 30 daga fyrir brottför, skal greiða 25% af heildarverði, samt sem áður að lágmarki 126.000 ISK, þegar bókun er gerð. Eftirstöðvar skal greiða ekki seinna en 30 daga fyrir brottför.
- Fyrir bókanir sem gerðar eru minna en 30 dögum fyrir brottför, skal greiða heildarupphæð ferðar við bókun.
- Varðandi bókanir sem eru að upphæð 126.000 ISK eða lægri, skal heildarupphæð greidd þegar bókun er gerð.
Dagsetning á greiðslu fyrir bókun er breytileg. Ef viðskiptavinur fylgir ekki þessum skilmálum, þá hefur SML þann rétt að afbóka bókunina og halda eftir þeim gjöldum sem eru í samræmi við afbókunarskilmála.
Sérstakir bókunarskilmálar eru fyrir hópa.
SML áskilur sér þann rétt að hækka verð fyrir pakkaferðir, áður en til samnings hefur komið við viðskiptavin, ef breytingar verða á kostnaði við samgöngur, eldsneyti, skatta og gengisverð sem notuð eru til útreikninga á verðunum.
Bankamillifærsla
Þegar millifærsla er gerð í gegnum banka þá þarf að setja bókunarnúmer í athugasemdir og senda kvittun á booking@smyrilline.is.
Landsbankinn, Austurstræti 11, 101 Reykjavík
Reikningsnúmer: 0133-26-200735
Kennitala: 711014-0980
IBAN: IS28 0133 2620 0735 7110 1409 80
SWIFT: NBIIISRE
BREYTINGAR Á BÓKUN EFTIR STAÐFESTINGU
- Breytingar meira en 30 dögum fyrir brottför: 4.200 ISK
- Breytingar 30-15 dögum fyrir brottför: 8.400 ISK
- Breytingar 14-8 dögum fyrir brottför: 16.800 ISK
- Breytingar 7-0 dögum fyrir brottför: 25.200 ISK
AFBÓKUNARSKILMÁLAR
- Afbókun meira en 30 dögum fyrir brottför: 10%
- Afbókun 30-15 dögum fyrir brottför: 50%
- Afbókun 14-8 dögum fyrir brottför: 75%
- Afbókun 7-0 dögum fyrir brottför: 100%
Sérstakir afbókunarskilmálar gilda fyrir hópa.
BREYTINGAR/AFBÓKANIR HJÁ SML FYRIR BROTTFÖR
Farþegar hafa þann rétt á að fá upplýsingar um breytingu á komutíma og brottfarartíma Norrönu. Upplýsingar um brottför og komu má finna á smyrilline.is og í síma +354 4702803. Ef pakkaferð er afbókuð af SML fyrir brottför eða getur ekki verið uppfyllt eins og samið var um, þarf að upplýsa viðskiptavin sem fyrst. Jafnframt gildir þetta ekki þegar kemur að minniháttar breytingum. Á sama tíma og breytingar/afbókanir eru tilkynntar, ber SML að upplýsa viðskiptavininn um rétt hans til að leggja fram kvörtun. Viðskiptavinur hefur þann rétt að rifta eða að fá einhvern hluta ferðar endurgreiddan, sem greiddur hefur verið skv. skilmálum, eða fá að taka þátt í annarri pakkaferð af hans vali, ef SML getur boðið það án mikils kostnaðar eða taps. Viðskiptavinur verður að láta SML vita innan viðunandi tíma eftir að hann hefur verið upplýstur um breytingarnar.
Ef viðskiptavinur ákveður að taka þátt í pakkaferð sem ber meiri kostnað en sú sem var upprunalega bókuð, þá þarf viðskiptavinur að borga kostnaðinn sem verður á milli. Ef pakkaferðin hefur lægri kostnað en upprunalega ferðin þá ber SML að borga viðskiptavininum mismuninn.
Ábyrgð og undanskilin ábyrgð SML varðandi breytingar:
Ef viðskiptavinur verður fyrir tapi vegna breytinga hjá SML eða vegna afbókunar á pakkaferð, hefur viðskiptavinurinn þann rétt að krefjast endurgreiðslu í samræmi við almenna skilmála varðandi endurgreiðslu, að undanskyldu því að afbókunin sé vegna dræmrar þátttöku sem áður hefur verið nefnd í samkomulaginu. Það felur í sér að ákveðin prósenta farþega hefur ekki náðst og að SML hefur upplýst þá viðskiptavini um breytinguna ekki seinna en 14 dögum fyrir brottför (fyrir styttri skoðunarferðir/rútuferðir getur styttri upplýsingatími verið í gildi). Einnig að missir sé vegna þriðja aðila eða ytri aðstæðna sem tengjast ekki pakkaferð og að SML eða einhver sem SML er ábyrgur fyrir, gæti ekki hafa séð fyrir þessar kringumstæður í tenglsum við pakkaferð með því að leggja varkærni þegar samningur var gerður, eða hefði getað komið í veg fyrir það. Þar má nefna force majure eða aðrar kringumstæður sem líkjast til force majure. SML fellur ekki undir þá reglu um þá ábyrgð sem liggur hjá skipum, hótelum og öðrum birgjum. SML ber ekki ábyrgð á skemmdum á hlutum þriðja aðila, eða týndum, stolnum og eyðilögðum farangri eða farartækjum. Fyrir ferðina gilda SML ferðareglur. Vitnað er í tímatöfluna.
Kvartanir og takmörkun á ábyrgð
Ef að viðskiptavinur finnur misræmi í uppgefnum upplýsingum á meðan á ferð stendur eða varðandi áfangastað, verður hann/hún að tilkynna það til SML eða þess þjónustaðila sem bókað var hjá, til að láta vita af misræminu. Misræmi á sér stað ef farþegi fær ekki þá þjónustu sem samkvæmt bæklingum, auglýsingum og sérstökum samningum við SML, sem kemur fram á bókunarstaðfestingu viðskiptavinarins, eða að frammistaða sé af verri gæðum heldur en samið var um eða staðfest. Ef SML vill bæta upp fyrir slæma upplifun, þá getur viðskiptavinur ekki beðið um bætur eða rift samningnum. Ef það sem SML bætir upp veldur því kostnaði eða ókostum, getur verið að viðskiptavini sé frekar bent á að fá afslátt af gjaldinu eða afbóka. Beiðnir um endurgjald verða að koma til SML eða millilið innan viðunandi tíma eftir að ferð hefur endað. Á sama tíma takmarkar SML ábyrgð sína vegna breytinga eða skemmda sem er tilkomin vegna alþjóðasáttmála um þjónustuaðila, sem eru ábyrgir fyrir öðrum hlutum pakkaferðarinnar.
- Fyrir flugferðir: Varsjá sáttmálinn
- Fyrir sjóferðir: Aþenu sáttmálinn
- Fyrir lestarferðir: Sáttmáli um alþjóðlega lestarflutninga
Ferðatrygging
Þar sem lág upphæð er endurgreidd skv. alþjóðlegum sáttmálum, þar sem viðskiptavinur þarf að borga allan kostnað sem tilkomin er vegna heilbrigðisþjónustu, mælum við með því að viðskiptavinir fái sér sjúkratryggingu. Vinsamlegast hafið samband við ferðaráðgjafa okkur fyrir frekari upplýsingar.
BÓKANIR Í GEGNUM ÞRIÐJA AÐILA
Fyrir landflutninga í tengslum við pakkaferðir sem bókaðar eru í gegnum aðra aðila en Smyril Line, þá geta aðrir skilmálar gilt hjá þeim fyrirtækjum varðandi þessar ferðir. Þeir skilmálar taka gildi þegar pakkaferð er bókuð. Sérstaklega er átt við um reglur sem gilda um innritunartíma, gæludýr og geta þær reglur verið mismunandi hjá fyrirtækjum.
FERÐATÍMAR
Allir siglingartímar eru staðartímar og breytilegir vegna veðurs. SML veitir sér þann rétt að breyta siglingaráætlun. Viðskiptavinum ber að halda sér upplýstum varðandi brottfarartíma og mögulegar breytingar á heimasíðu SML smyrilline.is eða í síma +354 4702803.
INNRITUN
Innritunartíma má finna hér.
Viðskiptavinir með sérstakar þarfir eru beðnir um að mæta 2 klukkustundum fyrir áætlaða brottför. Vinsamlegast tilkynnið allar sérþarfir til starfsmanna við innritun til að hægt sé að veita þeim viðskiptavinum þá aðstoð sem þeir þurfa. Vinsamlegast athugið að brottfarartími er sá tími og dagsetning sem tekin er fram á miðanum. SML veitir sér þann rétt að aflýsa ferðum fyrir þá aðila sem ekki hafa mætt í innritun á tilteknum tíma. SML veitir sér þann rétt að leggjast frá höfn þegar innritun hefur verið lokað. Ekki er hægt að fara á bílþilfarið á meðan á siglingu stendur.
Viðskiptavinur þarf að hafa í huga að biðtími getur orðið í innirtun, þegar keyrt er um borð og frá borði, og að viðskiptavinur getur ekki vænst þess að vera komin í land á komutíma skipsins.
SÉRÞARFIR
Viðskiptavinir með sérþarfir eru vinsamlegast beðnir um að mæta 2 klukkustundum fyrir áætlaða brottför. Vinsamlegast látið vita við innritun um allar sérþarfir, til að hægt sé að veita góða þjónustu (t.d. að leggja bílnum nálægt lyftu, aðstoð við að komast til og frá klefa hönnuðum fyrir fólk með sérstakar þarfir osfrv.) Á meðan SML gerir sitt besta, til að koma til móts við þarfir viðskiptavinarins, þá getur verið að bið verði þegar kemur að komu og brottför.
VIÐSKIPTAVINUR MÆTIR EKKI (NO-SHOW)
Skylda viðskiptavinar – mætir ekki í brottför – notar ekki þjónustuna: Ef viðskiptavinur hefur ekki afbókað pakkaferð, og/eða að hann mætir ekki á áætlaðan mætingarstað né á áætluðum mætingartíma, fyrir brottför eða heimkomu, eða ef viðskiptavinur er ekki með öll ferðagögn, t.d. gilt vegabréf, visa áritun, gildar bólusetningar ofl., þá getur SML rukkað viðskiptavin um fullt verð á þeirri þjónustu sem hann keypti. Þetta gildir einnig ef viðskiptavinur er rekin frá borði vegna ítrekaðra brota á reglum Norrönu, hótelsins osfrv. Ef viðskiptavinur mætir ekki á tiltekin mætingarstað eða nýtir sér ekki aðra fyrirfram bókaða þjónustu sem er innifalin í pakkaferð, þá getur hann ekki beðið um endurgreiðslu á þeirri þjónustu. Viðskiptavinur þarf að halda sér upplýstum um brottfarartíma og heimkomu, ef hann hefur bókað fleiri en eina brottför, eða hefur af einhverjum ástæðum slitið sig frá þeim ferðahóp sem hann hefur ferðast með. Jafnframt þarf viðskiptavinur að fylgja öllum þeim reglum sem varða staðfestingar á flugleiðum sem eru innifaldar í einstaklingsferðum og pakkaferðum, sem ekki eru með hópstjóra. Láti viðskiptavinur ekki vita af þessum upplýsingum getur flugfélagið sett þessi sæti í sölu. Frekari upplýsingar má finna í lögum um pakkaferðir og samtengdar ferðatilhaganir 2018 nr. 95.
BROTTFÖR ÚR KLEFA
Klefar eru tilbúnir fyrir gesti allt að 2 klukkutímum fyrir brottför. Sá tími sem viðskiptavin ber að yfirgefa klefa getur breyst og er tilkynntur um borð í Norrönu.
ÖRYGGISREGLUR
Til að tryggja öryggi þá getur farangur og farartæki verið skoðuð áður en komið er um borð. Ef að viðskiptavinur neitar að leitað sé í farangri eða farartæki hans, þá getur honum verið neitað um inngöngu um borð í Norrönu, án þess að fá endurgreitt. Farangur sem getur valdið ónæði eða haft áhrif á öryggi, farþega eða vörur, má ekki koma um borð. Viðtakandi skal miðað við aðstæður, án þess að fá bætur, fara með farangurinn í land, afhenda hann eða eyða honum, ef komið er með hann um borð án vitundar og skriflegs samþykkis. Viðskiptavini er óheimilt að koma með um borð farangur, sem getur valdið öryggisbresti undir alþjóðalögum um öryggi skipa og hafna. Ef að brot á ofangreindu efni varðar hömlur á brottför skips og starfsemi þess eða sekt að einhverjum toga, á skipið eða eigendur þess, þá ber viðskiptavinur ábyrgð á útgjöldum og þeim kostnaði sem kemur vegna þessa atviks, en einnig ef um tekjutap er að ræða fyrir fyrirtækið. Viðskiptavin ber að kynna sér allar reglur og lög sem snúa að flutningi hættulegra vara og farangurs.
REYKINGAR
Reikningar eru einungis leyfðar í reykingarrýminu Hjallurinn á 9. þilfari. Þessar reglur varða bæði farþega og starfsfólk. Bannað er að reykja í klefunum og varða brot á þessum reglum sekt allt upp að 203 EUR.
FRAKTFLUTNINGAR
Faratæki, sem send eru án bílstjóra eða skráningarnúmers auk farartækja sem áætluð eru til varanlegs innflutnings, þarf að bóka sem fraktflutning. Nánari upplýsingar má finna hér.
Varðandi flutning til Íslands, Færeyja eða Danmerkur þá bendum við á Smyril Line Cargo: Sími +354 4702800 eða island@cargo.fo.
Reglur varðandi innflutning á plöntum og plöntuafurðum
Reglur um innflutning á plöntum og plöntuafurðum frá löndum utan ESB kveða á um að óheimilt sé að flytja inn plöntur, fræ, ávexti og aðrar plöntuafurðir frá ferðum í löndum utan ESB, án þess að þeim fylgi heilbrigðisvottorð fyrir plöntur. Lesa meira